Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. mars 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
EM U21 í dag - Spánn og Ítalía eigast við
U21 árs landslið Spánar er öflugt
U21 árs landslið Spánar er öflugt
Mynd: Getty Images
Evrópumótið hjá U21 árs landsliði karla er í fullum gangi og eru fjórir lekir á dagskrá í dag en Spánn og Ítalía eigast við í B-riðli.

Spánn vann Slóveníu í fyrstu umferð á meðan Ítalía gerði 1-1 jafntefli við Tékkland. Sandro Tonali, lykilmaður ítalska liðsins, er í banni ásamt tveimur öðrum leikmönnum og gæti það reynst of mikil blóðtaka fyrir ítalska liðið.

Þýskaland mætir þá Hollandi í A-riðli en í sama riðli eigast Ungverjaland og Rúmenía við.

Leikir dagsins:
17:00 Ungverjaland U-21 - Rúmenía U-21
17:00 Slóvenía U-21 - Tékkland U-21
20:00 Þýskaland U-21 - Holland U-21
20:00 Spánn U-21 - Ítalía U-21
Athugasemdir
banner