Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. mars 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lavia spilar ekkert meira á tímabilinu
Romeo Lavia.
Romeo Lavia.
Mynd: Chelsea
Belgíski miðjumaðurinn Romeo Lavia mun ekkert koma meira við sögu á tímabilinu með Chelsea.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Chelsea í dag.

Lavia er tvítugur Belgi sem hefur einungis komið við sögu í einum leik á tímabilinu. Það var leikur gegn Crystal Palace í desember.

Lavia kom til Chelsea frá Southampton fyrir 58 milljónir punda síðasta sumar.

Hann hefur verið meiddur svo gott sem allt tímabilið og mun ekkert koma meira við sögu. Það er núna orðið ljóst.
Athugasemdir
banner