Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. mars 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Stones meiddist gegn Belgíu - Óvíst hvort hann verði með næstu helgi
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn John Stones meiddist í 2-2 jafntefli Englands gegn Belgíu í gær og er óvíst hvort hann verði með í stórslag Manchester City og Arsenal næstu helgi.

Þetta landsleikjaverkefni var ekkert sérlega gott fyrir Man City, sem er í harðri titilbaráttu við Arsenal og Liverpool.

Kyle Walker meiddist eftir tuttugu mínútur í 1-0 tapinu gegn Brasilíu og þá meiddist Stones í leiknum í gær.

„John Stones þurfti að yfirgefa völlinn vegna vöðvameiðsla. Hann er á leið í frekari rannsóknir,“ sagði Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, í gær.

Tveir varnarmenn Man City eru komnir á meiðslalistann fyrir einn og ef ekki mikilvægasta leik tímabilsins hjá Englandsmeisturunum.

Arsenal er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni með 64 stig, eins og Liverpool, en Man CIty er í þriðja sæti með 63 stig.
Athugasemdir
banner
banner