Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. maí 2021 19:31
Aksentije Milisic
Ramos við Zidane: Njóttu lífsins, þú hefur unnið fyrir því
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, senti Zinedine Zidane hlýjar kveðjur en sá franski hætti sem þjálfari Real Madrid í gær. Þetta er í annað skiptið sem hann yfirgefur félagið sem þjálfari.

Zidane sneri aftur til Real árið 2019 og á síðustu leiktíð vann hann deildina með liðinu. Í ár tókst Real hins vegar ekki að vinna neinn titil og því hafði Zidane ákveðið að ganga frá borði.

Ramos, sem hafði unnið ellefu titla hjá Real með Zidane sem þjálfara, þar á meðal Meistaradeildar í þrígang, skrifaði skilaboð til Zidane á Instagram.

„ZZ, sá eini sanni. Ég óska þér alls hins besta. Þú átt það skilið, þú hefur unnið fyrir því," skrifaði Ramos.

„Njóttu lífsins, njóttu fjölskyldunnar. Stórt knús, herra. Merci Zidane."

Hinn 35 ára gamli Ramos var ekki sá eini sem senti skilaboð til Zidane en markvörðurinn Thibaut Courtois skrifaði einnig skilaboð til hans á Instagram ásamt Toni Kroos, Casemiro, Dani Carvajal, Raphael Varane og fleiri.
Athugasemdir
banner
banner
banner