Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. júlí 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Lykilkona Þýskalands ekki með gegn Frökkum
Klara Bühl verður ekki með í kvöld
Klara Bühl verður ekki með í kvöld
Mynd: EPA
Þýska landsliðskonan Klara Bühl verður ekki með landsliðinu gegn Frakklandi í undanúrslitum Evrópumótsins í kvöld eftir að hún greindist með kórónaveiruna.

Bühl er 21 árs gömul og hefur byrjað alla fjóra leiki Þýskalands í mótinu en liðið hefur unnið alla leikina, skorað ellefu mörk og ekki enn fengið á sig mark.

Liðið mætir Frökkum í undanúrslitum í kvöld en Bühl verður fjarri góðu gamni.

Hún greindist með kórónaveiruna og þurfti því að einangra sig frá hópnum en hún á möguleika á því að ná úrslitaleiknum ef þýska liðinu tekst að vinna í kvöld.

Bühl skoraði í 2-0 sigri Þýskalands á Spánverjum í riðlakeppninni og lagði þá upp eitt mark í 3-0 sigrinum á Finnlandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner