Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. ágúst 2021 19:48
Victor Pálsson
Wolves ákveðið í að halda Traore
Mynd: Getty Images
The Telegraph greinir frá því að Wolves sé ákveðið í því að halda Adama Traore hjá félaginu í sumarglugganum.

Traore er sterklega orðaður við Tottenham þessa dagana en talið er að félagið hafi reynt að fá hann á láni.

Wolves hefur engan áhuga á að losna við Traore en Tottenham hefði svo getað keypt hann eftir leiktíðina.

Nuno Santo er í dag stjóri Tottenham en hann vann með Traore hjá Wolves þar sem hann bætti sinn leik.

Telegraph segir að Wolves ætli að halda leikmanninum sem á tvö ár eftir af samningi sínum á Molineaux.
Athugasemdir
banner