Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 27. október 2019 18:20
Brynjar Ingi Erluson
Xhaka skipt af velli og sagði stuðningsmönnum að fokka sér
Granit Xhaka er ekkert sérlega vinsæll hjá stuðningsmönnum Arsenal
Granit Xhaka er ekkert sérlega vinsæll hjá stuðningsmönnum Arsenal
Mynd: Getty Images
Granit Xhaka, fyrirliði Arsenal á Englandi, vandaði stuðningsmönnum liðsins ekki kveðjurnar er honum var skipt af velli í leik liðsins gegn Crystal Palace.

Leik Arsenal og Crystal Palace er að ljúka en staðan er 2-2. Arsenal komst í 2-0 en glutraði forystunni niður í 2-2.

Svissneski landsliðsmaðurinn Granit Xhaka er fyrirliði Arsenal en honum var skipt af velli á 61. mínútu fyrir Bukayo Saka.

Xhaka er ekki vinsælasti leikmaður Arsenal liðsins og hefur oft verið gagnrýndur fyrir frammistöður sínar. Þegar honum var skipt af velli í dag þá bauluðu stuðningsmenn Arsenal á hann og brást hann við með að segja þeim til syndanna.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner