Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. nóvember 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Messi leikur 700. leik sinn fyrir Barcelona
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Lionel Messi verður annar leikmaðurinn til að spila 700 leiki fyrir Barcelona þegar liðið mætir Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld.

Xavi lék 767 leiki fyrir Barcelona.

Messi er 32 ára og hefur skorað 612 mörk fyrir Börsunga.

Barcelona og Dortmund mætast klukkan 20:00 í kvöld en bæði lið vita að sigur á Nývangi tryggir þeim sæti í 16-liða úrslitum.

Lucien Favre, stjóri Dortmund, er undir mikilli pressu en liðið er í sjötta sæti þýski deildarinnar.

Barcelona er á toppi La Liga en þrátt fyrir það hefur liðið ekki þótt vera sannfærandi á tímabilinu.

Barcelona verður án þriggja varnarmanna í kvöld; Gerard Pique tekur út leikbann og miðverðirnir Nelson Semedo og Jordi Alba eru meiddir. Hjá Dortmund er Paco Alcacer meðal manna á meiðslalistanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner