Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. maí 2021 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Elmohamady farinn frá Aston Villa - McNeil eða Buendia í staðinn?
Mynd: Getty Images
Hinn 33 ára gamli Ahmed Elmohamady er búinn að tilkynna að hann sé á förum frá Aston Villa.

Samningur Elmohamady rennur út í lok júní og mun hann ekki gera nýjan samning við úrvalsdeildarfélagið.

Elmohamady hefur spilað yfir 100 leiki á fjórum árum hjá Villa en þar áður spilaði hann fyrir Hull City og Sunderland í enska boltanum.

Villa vantar þá kantmann og eru Dwight McNeil frá Burnley og Emiliano Buendía efstir á óskalista Dean Smith.

McNeil og Buendía eru þó eftirsóttir leikmenn og verður erfitt fyrir Villa að vinna hin ýmsu stórlið í baráttunni um þessa menn.
Athugasemdir
banner
banner
banner