Íslendingalið Kristianstad byrjar ekki vel í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Liðið mætti Gautaborg í dag og var niðurstaðan 5-1 tap. Gautaborg leiddi 1-0 í hálfleik, en það var byrjunin í seinni hálfleik sem gerði útslagið. Þá setti Gautaborg tvö mörk með stuttu millibili.
Kristianstad minnkaði muninn með marki sem Svava Rós Guðmundsdóttir lagði upp, en í kjölfarið svaraði Gautaborg svo með tveimur mörkum.
Elísabet Gunnarsdóttir var í stúkunni vegna veikinda og stýrði aðstoðarþjálfari hennar, Björn Sigurbjörnsson, liðinu í dag.
Sif Atladóttir er einnig á mála hjá Kristianstad, en hún er ólétt og lék því ekki með liðinu í dag.
Athugasemdir