Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. júlí 2020 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Patrick verður klár í Mjólkurbikarinn á föstudag
Patrick Pedersen.
Patrick Pedersen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn öflugi Patrick Pedersen verður klár í næsta leik Vals gegn ÍA í Mjólkurbikarnum næstkomandi föstudag.

Hann var ekki með í 3-1 sigrinum á Fjölni í gær vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 3-0 sigrinum á Fylki síðastliðinn fimmtudag.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali eftir leikinn að Patrick verður klár gegn ÍA.

Þetta eru góð tíðindi fyrir Val enda er Patrick algjör lykilmaður í liði Valsmanna. Hann hefur á þessu tímabili skorað sex mörk í átta deildarleikjum.

Viðtalið við Heimi frá því í gærkvöldi má hlusta á hér að neðan.
Heimir Guðjóns: Vorum opnir varnarlega
Athugasemdir
banner
banner