Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 28. ágúst 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan kaupir leikmann frá Schalke
Malick Thiaw
Malick Thiaw
Mynd: Getty Images
Malick Thiaw, leikmaður Schalke, verður leikmaður AC Milan á Ítalíu á morgun en þetta segja ítalskir fjölmiðlar.

Thiaw er 21 árs gamall miðvörður sem er fæddur í Þýskalandi en hann er þó einnig með finnskt vegabréf.

Varnarmaðurinn spilaði stóra rullu í þegar þegar liðið kom sér aftur upp í efstu deild á síðasta tímabili.

Hann hefur spilað alla leiki Schalke á þessu tímabili en er nú á förum og mun ganga í raðir Milan á morgun. Hann flýgur til Mílanó í dag og fer svo í læknisskoðun á morgn áður en hann skrifar undir langtímasamning. Kaupverðið er 5 milljónir evra.

Thiaw á 8 landsleiki fyrir U21 árs landslið Þýskalands og hefur skorað 2 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner