Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. desember 2019 12:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lucas Moura hélt vöku fyrir nágrönnum með flugeldum
Mynd: Getty Images
Lucas Moura, leikmaður Tottenham, fór, ásamt vinum sínum, aðeins fram úr sjálfum sér þegar hann fagnaði á jólanótt. Lucas hefur beðið nágrana sína afsökunar eftir að hafa skotið upp flugeldum.

Brasilíumaðrinn var með veislu á aðfangadagskvöld sem stóð langt fram á nótt. Um klukkan tvö eftir miðnætti var flugeldum skotið á loft.

Í samtali við theSun sagðist einn nágranna Moura ekki hafa getað sofnað fyrr en um klukkan þrjú þá nóttina.

Moura hefur beðist afsökunar á látunum en hann var svo klár í byrjunarlið Tottenham þegar liðið sigraði Brighton um einum og hálfum sólarhring seinna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner