Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. desember 2019 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Zlatan: Ætla koma þessu félagi aftur á rétta braut
Zlatan er mættur aftur til Mílanó.
Zlatan er mættur aftur til Mílanó.
Mynd: Getty Images
AC Milan staðfesti í gær komu Zlatan Ibrahimovic til félagsins, hann lék síðast með félaginu á árunum 2010-2012.

Gengi AC Milan á tímabilinu hefur ekki verið gott, þeir sitja sem stendur í 11. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Zlatan segist vera kominn til að gera allt sem hann getur til að koma AC Milan aftur á rétta braut.

„Ég er að koma aftur til félags sem ég ber mikla virðingu fyrir og borgarinnar sem ég elska, Mílanó."

„Ég mun berjast ásamt liðsfélögum mínum við að koma þessu félagi aftur á rétta braut, ég mun gera allt sem ég get til að láta það ganga eftir," sagði Zlatan eftir að hafa skrifað undir sex mánaða samning við AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner