Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. mars 2024 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Felipe Melo um Dani Alves og Robinho: Ég á 15 ára dóttur
Melo og Walker rifust í úrslitaleiknum á HM félagsliða.
Melo og Walker rifust í úrslitaleiknum á HM félagsliða.
Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Felipe Melo var spurður út í nauðgunarmálin hjá samlöndum hans Robinho og Dani Alves, sem hafa báðir hlotið dóma fyrir nauðganir.

Melo er 40 ára gamall og spilar enn í dag sem leikmaður hjá Fluminense í heimalandinu eftir farsælan feril með stoppum hjá Juventus, Inter og Galatasaray meðal annars.

Hann á 22 landsleiki að baki og var spurður út í hegðun þessa fyrrum landsliðsfélaga sinna sem voru dæmdir.

„Ég á 15 ára dóttur. Ef þeir myndu gerast sekir um svona brot gegn dóttur minni, þá væri ég ekki hér núna að gefa þetta viðtal," sagði Melo.

„Þeir eiga að borga fyrir það sem þeir gerðu og það verður vonandi öðrum fótboltamönnum að lexíu."
Athugasemdir
banner
banner