Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 29. apríl 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland hefur lokið keppni í eEuro 2021
Mynd: PES
Íslenska landsliðið í eFótbolta hefur leikið seinni umferð sína í undankeppni eEURO 2021.

Ísland var í riðli með Ítalíu, Portúgal, Englandi, Moldóvu og Norður Írlandi, en leikið var í PES tölvuleiknum.

Strákarnir töpuðu öllum sínum leikjum í fyrri umferðinni, en stóðu sig betur í þeirri seinni. Úrslit úr leikjum seinni umferðar má sjá hér að neðan:

Ísland - Norður Írland 1-1

Ísland - Portúgal 4-7

Ísland - Ítalía 0-9

Ísland - Moldóva 4-10

Ísland - England 2-3

Ljóst er að Portúgal hefur tryggt sér sæti í lokakeppninni, en Ítalía fer áfram í umspil um laus sæti þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner