Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. maí 2021 14:00
Victor Pálsson
Grealish 100 prósent klár fyrir EM
Mynd: Getty Images
Jack Grealish er 100 prósent klár í að spila á EM í sumar að sögn Dean Smith sem er þjálfari Aston Villa.

Grealish var valinn í 33-manna hóp Gareth Southgate fyrir EM en það á enn eftir að minnka þann hóp fyrir mótið sem hefst í næsta mánuði.

Þessi 25 ára gamli leikmaður missti af miklu undir lok tímabils en sneri til baka áður en lokaumferðin fór fram.

Samkvæmt Smith getur Grealish spilað á EM og vonandi fyrir hann verður hann í lokahóp Southgate fyrir mótið.

„Hann er í 100 prósent standi. Fyrst þurftum við að sjá til þess að hann gæti spilað fyrir Aston Villa," sagði Smith.

„Við tókum enga sénsa með leikmann eins og Jack þegar fjórir leikir voru eftir, nema það hefði verið rétt í stöðunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner