Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. maí 2022 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Njarðvík áfram með fullt hús
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík 3 - 0 Reynir Sandgerði
1-0 Magnús Þórir Matthíasson ('9)
2-0 Kenneth Hogg ('51)
3-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('83)


Njarðvík er áfram með fullt hús stiga í 2. deild karla eftir góðan sigur á botnliði Reyni Sandgerðis í kvöld.

Magnús Þórir Matthíasson kom Njarðvík yfir snemma leiks og tvöfaldaði Kenneth Hogg forystuna í upphafi síðari hálfleiks. Úlfur Ágúst Björnsson gerði svo endanlega út um leikinn með marki á lokakaflanum, fjórða markið hans í sumar.

Njarðvík er með tólf stig eftir fjórar umferðir og markatöluna 15:1. Völsungur og Ægir fylgja í öðru sæti með tíu stig.

Reynir Sandgerði er án stiga.



Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner