Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. maí 2022 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Messi: Verð mikið betri á næstu leiktíð
Mynd: EPA

Lionel Messi skipti yfir til Paris Saint-Germain á frjálsri sölu í fyrra og vann frönsku deildina á sínu fyrsta tímabili. 


Markmið PSG eru þó háleitari heldur en það og er stór hluti stuðningsmanna félagsins ósáttur með frammistöðu Messi á sínu fyrsta tímabili í Frakklandi.

Messi segir stuðningsmönnum þó ekki að örvænta því næsta leiktíð mun vera betri. Hann hafi þurft smá aðlögunartíma eftir skrýtið sumar í fyrra.

„Ég verð mikið betri á næstu leiktíð með Paris Saint-Germain, ég er viss um það. Þetta var mjög erfitt aðlögunarferli eftir sturlað sumar," sagði Messi.

„Það var mjög erfitt að skilja hvað gerðist, ég bjóst aldrei við því að yfirgefa Barcelona. Þetta var sjokk."


Athugasemdir
banner
banner
banner