Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Vidal: Messi er frá annarri plánetu
Lionel Messi og Arturo Vidal skoruðu báðir í gær
Lionel Messi og Arturo Vidal skoruðu báðir í gær
Mynd: Getty Images
Sílemaðurinn Arturo Vidal segir að Lionel Messi sé frá annarri plánetu en þeir áttu báðir frábæran leik í 5-1 sigrinum á Valladolid í gær.

Vidal fékk langþráð tækifæri í byrjunarliði Barcelona og nýtti það með því að skora laglegt mark eftir glæsilega sendingu frá Messi.

Messi skoraði sjálfur tvö mörk og lagði upp tvö mörk.

„Það hjálpar svo sannarlega til þegar Leo gefur allt sitt í leikina og þegar hann spilar svona þá finnur liðið það," sagði Vidal.

„Við sjáum hann á hverjum degi en hann kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart. Leo er frá annarri plánetu. Ég á erfitt með að lýsa Leo í orðum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner