Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. janúar 2020 09:06
Magnús Már Einarsson
Inter Miami blandar sér í baráttuna um Cavani
Mynd: Getty Images
Inter Miami, nýtt félag David Beckham í MLS-deildinni, hefur átt í viðræðum við Edinson Cavani framherja PSG.

Cavani verður samningslaus í sumar og ýmsar vangaveltur hafa verið varðandi framtíð hans að undanförnu.

Inter Miami hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Cavani hefur verið sterklega orðaður við Atletico Madrid undanfarnar vikur en samningaviðræður þar sigldu í strand í gær.

Cavani hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Manchester United en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði PSG að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner