Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   mán 31. maí 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Þrír Pepsi Max slagir í bikarnum
Breiðablik vann 1-0 sigur á Stólunum á dögunum.
Breiðablik vann 1-0 sigur á Stólunum á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er fróðlegur dagur framundan í fótboltanum hér á Íslandi. Flestir dagar hafa verið það undanfarið í íslenska boltanum.

Í dag eru þrír leikir á dagskrá í Mjólkurbikar kvenna. Þetta eru leikir í 16-liða úrslitunum en allir þrír leikir dagsins eru slagir á milli félaga úr Pepsi Max-deildinni.

Stjarnan fær ÍBV í heimsókn, Fylkir mætir Keflavík og Breiðablik, sem vann stórsigur á Val í síðustu viku, fær Tindastól í heimsókn. Blikar og Tindastóll áttust við á dögunum og þá rétt marði Breiðablik sigur.

Það er einnig leikið í 4. deild karla í dag en alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.

mánudagur 31. maí

4. deild karla - A-riðill
20:00 Árborg-RB (JÁVERK-völlurinn)
20:00 GG-Kría (Grindavíkurvöllur)

4. deild karla - C-riðill
20:00 Björninn-Reynir H (Fjölnisvöllur - Gervigras)

Mjólkurbikar kvenna
18:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
19:15 Fylkir-Keflavík (Würth völlurinn)
19:15 Breiðablik-Tindastóll (Kópavogsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner