Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. október 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Umboðsmaður Bale: Hann er ánægður í Madríd
Gareth Bale er ánægður í Madríd
Gareth Bale er ánægður í Madríd
Mynd: Getty Images
Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, segir að leikmaðurinn vilji ekki yfirgefa Real Madrid.

Bale var nálægt því að yfirgefa Madrídinga í sumar og semja við Jiangsu Suning en á endanum varð ekkert af sölunni og ákvað Real Madrid að halda honum.

Fjölmiðlar hafa ritað um það lengi að Bale sé óánægður hjá spænska félaginu og að honum semur ekki við Zinedine Zidane, þjálfara liðsins, en Barnett hafnar því alfarið.

„Gareth er í skýjunum með að spila fyrir Real Madrid. Er hann á leið til Kína? Ég myndi ekki trúa öllu sem þú heyrir," sagði Barnett.

Bale hefur unnið Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum með Real Madrid frá því hann kom til félagsins frá Tottenham árið 2013.
Athugasemdir
banner