Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   lau 11. ágúst 2018 12:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Iniesta með huggulegt mark - Frábær snúningur
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta, einn besti leikmaður sem klæðst hefur treyju Barcelona, er mættur í japanska boltann og er hann byrjaður að skora þar í landi.

Spænski miðjumaðurinn, sem er gríðarlega vinsæll í Japan, skoraði sitt fyrsta mark fyrir nýja lið sitt, Vissel Kobe, í dag þegar liðið sigraði Júbilo Iwata á heimavelli

Iniesta skoraði fyrsta mark leiksins eftir sendingu frá Þjóðverjanum Lukas Podolski.

Iniesta sýndi svo sannarlega í gæði sín í markinu en áður en hann skoraði átti hann magnaðan snúning.

Frábært mark hjá þessum 34 ára gamla leikmanni en það má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner