Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 01. júní 2021 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kane, Dias og Fernandes koma til greina sem leikmaður ársins
Mynd: EPA
Það eru átta leikmenn sem koma til greina í kjöri stuðningsmanna á besta leikmanni tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Tveir þeirra eru úr meistaraliði Manchester City, Ruben Dias og Kevin De Bruyne, en hinir sex skiptast jafnt á milli annarra liða.

Dias kemur einnig til greina sem besti ungi leikmaður tímabilsins en De Bruyne átti meiðslahrjáð tímabil og spilaði aðeins 25 úrvalsdeildarleiki.

Harry Kane var bæði marka- og stoðsendingahæstur í úrvalsdeildinni og kemur því augljóslega til greina. Tveir næstu menn í mörkum og stoðsendingum eru einnig á listanum, þeir Mohamed Salah og Bruno Fernandes.

Auk þeirra eiga Mason Mount, Tomas Soucek og Jack Grealish möguleika á að vera kosnir bestir.

Talið er að Kane, Dias og Fernandes endi í þremur efstu sætunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner