Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. júní 2021 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mount og Dias geta unnið tvöfalt
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin hefur staðfest þá átta leikmenn sem koma til greina sem besti ungi leikmaður ársins.

Sex leikmenn eru enskir, einn portúgalskur og einn franskur. Ruben Dias, sá portúgalski, er bæði tilnefndur sem besti ungi leikmaður tímabilsins og besti leikmaður tímabilsins. Sömu sögu er að segja um Mason Mount.

Dias er einn af tveimur leikmönnum Englandsmeistara Manchester City sem kemur til greina í valinu, ásamt Phil Foden.

Nokkrir landsliðsfélagar Foden koma einnig til greina, en engir þeirra leika fyrir sama félagslið.

Ruben Dias & Phil Foden (Man City), Mason Mount (Chelsea), Marcus Rashford (Man Utd), Dominic Calvert-Lewin (Everton), Bukayo Saka (Arsenal), Illan Meslier (Leeds) og Declan Rice (West Ham) eru tilnefndir.
Athugasemdir
banner
banner
banner