Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. janúar 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Inter í viðræðum við Eriksen
Mynd: Getty Images
Inter er eitt af þeim félögum sem eru í viðræðum við Christian Eriksen leikmann Tottenham.

Hinn 27 ára gamli Eriksen verður samningslaus næsta sumar og hann má byrja að ræða við erlend félög um samning fyrir næsta tímabil.

Tottenham vill selja Eriksen í þessum mánuði ef hann skrifar ekki undir nýjan samning en líklegast er þó að hann fari frítt frá félaginu í sumar.

Sky á Ítalíu segir að Inter sé í viðræðum við Eriksen en Juventus ku einnig hafa áhuga sem og fleiri félög.
Athugasemdir
banner
banner