Portsmouth fær Arsenal í heimsókn í enska FA-bikarnum klukkan 19:45 í kvöld en spilað er á Fratton Park, heimavelli Portsmouth.
Pablo Mari, sem kom frá Flamengo til Arsenal í janúar, er í byrjunarliði Arsenal í fyrsta sinn og þá eru þeir Eddie Nketiah og Gabriel Martinelli báðir í liðinu.
Hægt er að sjá byrjunarlið beggja liða hér afyrir neðan.
Byrjunarlið Portsmouth: Bass, McCrorie, Bolton, Burgess, Seddon, Close, McGeehan, Williams, Evans, Harness, Harrison.
Byrjunarlið Arsenal: Martinez; Sokratis, David Luiz, Pablo Mari, Saka; Guendouzi, Torreira; Nelson, Willock, Martinelli; Nketiah.
Athugasemdir