Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. júní 2021 23:15
Victor Pálsson
Pele valdi draumaliðið í FIFA
Mynd: Getty Images
Tölvuleikjarisinn EA Sports fékk brasilísku goðsögnina Pele til að velja draumalið sitt í tölvuleiknum FIFA í gær.

Pele er af sumum talinn besti leikmaður sögunnar en hann var oft borinn saman við Diuego Maradona.

Það er óhætt að segja að Pele velji sóknarsinnað lið og velur einnig Maradona á miðjuna.

Sergio Ramos og Thiago Silva eru í hjarta varnarinnar og þá er pláss fyrir bæði Cristiano Ronaldo og Lionel Messi.

Aðeins tveir leikmenn sem eru hættir fá pláss í liðinu eða þeir Maradona og Carlos Alberto.

Hér má sjá liðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner