Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júní 2022 12:25
Fótbolti.net
Hæfileikaleit Betis á Íslandi - Síðasti séns að skrá sig
Real Betis varð spænskur bikarmeistari á dögunum.
Real Betis varð spænskur bikarmeistari á dögunum.
Mynd: EPA

Spænska stórliðið Real Betis mun á mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku standa fyrir hæfileikaleit á Íslandi í samstarfi við Fraser Sport Management og TFA Dubai. Skráningarfrestur rennur út í lok vikunnar.

Smelltu hér til að skrá þig

Hæfileikaleitin fer fram á Malbikstöðinni að Varmá, heimavelli Aftureldingar í Mosfellsbæ, en leikmennirnir sem taka þátt æfa og spila undir stjórn þjálfara sem koma frá Real Betis á Spáni. Betis er eitt stærsta félagið á Spáni en það varð á dögunum spænskur bikarmeistari. 

Drengir á aldrinum 16-23 ára (Fæddir 1999-2006) geta sótt um að taka þátt í hæfileikaleitinni og þeir sem skara fram úr þar fara til Real Betis til æfinga í desember þar sem þeir spila gegn unglingaliði félagsins. 


Samskonar hæfileikaleit fer einnig fram í Noregi, Filippseyjum og Dubai á þessu ári og bestu leikmennirnir frá þessum löndum fá síðan tækifæri til að heimsækja Betis í desember.

Auk þess munu aðilar frá Noregi og Dubai fylgjast með hæfileikaleitinni á Íslandi og skoða leikmenn sem gætu átt möguleika á að spila í atvinnumennsku erlendis eða í háskólabolta  Bandaríkjunum.

Að minnsta kosti sex félög í Noregi hafa áhuga á að fá leikmenn úr hæfileikaleitinni til reynslu. 

Drengir á aldrinum 16-23 ára geta skráð sig í hæfileikaleitina en kostnaður er 225 evrur (31,500 krónur) á mann.

Smelltu hér til að skrá þig!


Athugasemdir
banner
banner
banner