Klukkan 18:45 hefst leikur Íslands og Rúmeníu á Laugardalsvelli. Um er að ræða leik í undankeppni fyrir HM í Katar.
Leikurinn er fyrsti leikurinn í þessum landsleikjaglugga. Á sunnudag mætir Íslands liði Norður-Makedóníu og á miðvikudag mætir íslenska liðið því þýska. Allir þrír leikirnir fara fram á Laugardalsvelli.

Fótbolti.net forvitnaðist rétt í þessu hversu margir miðar væru enn í sölu fyrir leikinn í kvöld. Svarið var að um 200 miðar væru enn óseldir.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn.
Athugasemdir