Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. janúar 2018 13:30
Elvar Geir Magnússon
Neymar nýtur þess að vera í fríi - Sólar sig í bát í Brasilíu
Neymar og kærasta hans.
Neymar og kærasta hans.
Mynd: Twitter
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar nýtur þess að vera í fríi í Brasilíu. Vetrarhlé er á keppni í frönsku deildinni.

Dýrasti leikmaður heims og kærasta hans, Bruna Marquezine, fóru saman í frí ásamt liðsfélaga hans, Kevin Trapp, og hans kærustu.

Þau fjögur leigðu sér bát og nutu sólarinnar.

Paris Saint-Germain hefur leik aftur á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Rennes í franska bikarnum. Liðið hefur ekki spilað síðan 13. desember.

Neymar hefur skorað 17 mörk fyrir PSG á þessu tímabili en liðið er með níu stiga forystu á toppi frönsku deildarinnar. Liðið hefur aðeins tapað einum deildarleik á tímabilinu og stefnir allt í að það endurheimti titilinn sem Mónakó vann á síðasta tímabili.

Í Meistaradeildinni er erfið viðureign framundan gegn ríkjandi meisturum í Real Madrid í 16-liða úrslitum og eins gott að Neymar nái að hlaða rafhlöðurnar vel fyrir þann slag.
Athugasemdir
banner
banner