Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Ibe sviptur ökuréttindum og sektaður
Mynd: Getty Images
Jordon Ibe, kantmaður Bournemouth, hefur verið sviptur ökuréttindum og sektaður um 7500 pund.

Hinn 24 ára gamli Ibe var dæmdur í dag fyrir atvik sem átti sér stað í London í júlí síðastliðnum.

Ibe var á ferð á Bentley bifreið sinni klukkan 04:50 um morgun þegar hann keyrði á dyrnar á kaffihúsi en hann lenti einnig á Mercedes bifreið sem var lagt fyrir utan.

Ibe stakk síðan af vettvangi en auk þess að fá 7500 punda (1,2 milljóna króna) sekt þarf hann að greiða eigendum kaffihússins 500 pund (82 þúsund krónur) í skaðabætur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner