Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Upplifði draumadag í sigrinum á Liverpool
Mynd: Getty Images
Ben Foster, markvörður Watford, hélt hreinu þegar liðið varð það fyrsta til að vinna Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Foster bauð Molly Hall, stuðningsmanni Watford, á völlinn og hún upplifði sannkallaðan draumadag.

Hin 12 ára gamla er í hjólastól en Foster heimsótti hana í desember og lofaði að bjóða henni á völlinn.

Hall hitti leikmenn Watford fyrir leikinn og fékk síðan að fylgja Foster út á völl.

Hér að neðan má sjá draumadag Hall í skemmtilegu myndbandi.


Athugasemdir
banner
banner