Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júní 2022 12:03
Elvar Geir Magnússon
Foden með Covid og dregur sig úr hópnum
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Getty Images
Phil Foden, leikmaður Manchester City, hefur dregið sig úr enska landsliðshópnum eftir að hafa greinst með Covid-19.

England á fjóra Þjóðadeildarleiki í þessum glugga, liðið mætir Ungverjalandi á morgun og svo Þýskalandi á þriðjudag á útivöllum.

Foden mun missa af þeim leikjum en mögulegt er að hann komi aftur inn í hópinn fyrir heimaleiki gegn Ítalíu og Ungverjalandi sem verða spilaðir á Molineux vellinum.

Gareth Southgate landsliðsþjálfari fór yfir stöðuna á hópnum á fréttamannafundi í dag.

„Fikayo Tomori og Marc Guehi komu inn í hópinn með meiðsli en eru á góðum batavegi. Þeir verða ekki með á morgun en eiga möguleika á að spila gegn Þýskalandi," segir Southgate.

„Raheem Sterling hefur misst af nokkrum dögum vegna veikinda og er tæpur en annars eru allir aðrir klárir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner