Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. júlí 2021 09:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Copa America: Brassar í undanúrslit - Jesus fékk rautt fyrir karatespark
Mynd: EPA
Brasilía 1 - 0 Síle
1-0 Lucas Paqueta ('46)
Rautt spjald: Gabriel Jesus, Brasilía ('48)

Brasilía er komið í undanúrslit Copa America eftir 1-0 sigur gegn Síle í 8-liða úrslitum.

Lucas Paqueta kom inn á sem varamaður í hálfleik og var búinn að koma Brössum yfir innan við mínútu seinna.

Gabriel Jesus fékk að líta rauða spjaldið fyrir að fara mjög hátt upp með fótinn og endaði með takkana í bringunni á Eugenio Mena, leikmanni Síle.

Eduardo Vargas náði að skora á 62. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu eftir skoðun í VAR.

Síle hélt boltanum betur í leiknum en náði ekki að skapa sér afgerandi færi eftir þetta.

Brasilía mætir Perú í undanúrslitum.

Sjá einnig:
Copa America: Perú áfram eftir magnaðan leik


Athugasemdir
banner
banner