Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. júlí 2021 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Staðfestir tilboð Arsenal í Locatelli
Mynd: Getty Images
Giovanni Carnevali, framkvæmdarstjóri Sassuolo á Ítalíu staðfesti að Arsenal hafi gert tilboð í miðjumanninn Manuel Locatelli.

Locatelli hefur sló í gegn með Sassuolo í Serie A á síðustu leiktíð og er með ítalska landsliðinu á EM þessa dagana þar sem hann heldur áfram að blómstra.

Carnevali staðfestir að mörg lið hafi áhuga á leikmanninum en Arsenal sé þó í bílstjórasætinu,

„Það er satt að það eru lið erlendis frá sem hafa áhuga, meðal annars Arsenal sem er í bílstjórasætinu. Arsenal hafa gert tilboð í Locatelli. Þeir eru að reyna allt til að kaupa Manuel (Locatelli) og þetta er gott tilboð. Við sjáum til hvað gerist.“ sagði Carnevali.

Carnevali segir að Juventus sé eina liðið á Ítalíu sem hefur sýnt áhuga á Locatelli.

„Juventus er eina ítalska liðið sem við höfum rætt við um Locatelli. Þeir hafa áhuga, við töluðum við (Federico) Cherubini, yfirmann knattspyrnumála hjá Juventus.. Við erum að reyna halda Locatelli rólegum svo ég hef ekki talað við hann né umboðsmanninn hans ennþá. Við getum hugsað um framtíðina hans en fyrst og fremst hugsum um nútíðina sem er að hann er að gera góða hluti með Ítalíu á EM."
Athugasemdir
banner
banner
banner