Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   lau 03. október 2020 17:43
Ívan Guðjón Baldursson
Kristján Guðmunds: Höfum trú á þessu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við Fylki í eina leik dagsins í Pepsi Max-deild kvenna og var Kristján Guðmundsson svekktur að hafa ekki skorað meira en eitt eftir yfirburði í fyrri hálfleik.

„Ég var mjög ánægður með mætinguna á völlinn, það er gaman að sjá fólk fylgjast með okkur og hvetja áfram," sagði Kristján strax að leikslokum.

„Við hefðum viljað vera búin að skora meira en eitt mark í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik var þetta mikill barningur og barátta. Við náðum að verjast löngu boltunum frá þeim en vorum ekki alveg nógu klók í sóknarleiknum."

Kristján var að lokum spurður hvort hann teldi Stjörnuna vera með öruggt sæti í efstu deild eftir jafnteflið, en Garðbæingar eru fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar lið eiga ýmist tvær eða þrjár umferðir eftir.

„Það var gott að fá stig og við erum að gera vel. Þetta lið er í hörkustandi og er að spila vel, eins og sást í fyrri hálfleik. Það var barningur í síðari hálfleik og við þurfum að spila svoleiðis leiki líka. Okkur líður bara vel og við höfum trú á þessu. Sjáum bara hvernig umferðin klárast á morgun."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner