Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 03. október 2020 18:37
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Real Sociedad sýndi yfirburði gegn Getafe
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Real Sociedad sýndi yfirburði í 3-0 sigri gegn Getafe í spænska boltanum í dag.

Mikel Oyarzabal gerði eina markið í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu og komust heimamenn nálægt því að bæta við marki fyrir leikhlé en tókst ekki.

Mikel Merino, fyrrum leikmaður Newcastle, tvöfaldaði forystuna á lokakaflanum og innsiglaði Portu sigurinn skömmu síðar.

Sociedad er komið með átta stig eftir fimm umferðir en þetta var fyrsta tap Getafe, sem er með sjö stig eftir fjóra leiki.

Elche og Huesca gerðu þá markalaust jafntefli í nýliðaslag og eru bæði með fjögur stig. Huesca er þó búið að spila fimm leiki og Elche þrjá.

Elche 0 - 0 Huesca

Real Sociedad 3 - 0 Getafe

1-0 Mikel Oyarzabal ('28, víti)
2-0 Mikel Merino ('79)
3-0 Portu ('81)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner