Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. nóvember 2020 15:15
Elvar Geir Magnússon
Ndombele: Ég og Mourinho hlæjum saman
Tanguy Ndombele og Jose Mourinho.
Tanguy Ndombele og Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Tanguy Ndombele, miðjumaður Tottenham, segir að samband sitt við knattspyrnustjórann Jose Mourinho sé gott. Það hafi þó komið upp erfiðir tímar á síðasta tímabili.

Mourinho gagnrýndi franska miðjumannin opinberlega á síðasta tímabili og setti meðal annars spurningamerki við vinnusemi og líkamlegt ástand hans.

Það hefur gengið betur hjá Ndombele á þessu tímabili og í viðtali við heimasíðu Tottenham segir hann samband sitt og Mourinho vera gott.

„Samband mitt og stjórans er gott. Við spjöllum saman og við hlæjum saman," segir Ndombele. „Erfiðar stundir á síðasta tímabili tilheyra fortíðinni."

Ndombele segist vera farinn að njóta lífsins í Lúndunum meira en hann gerði.

„Ég tel það. Ég er að finna mig betur og framlag mitt á æfingum og í leikjum er betra. Ég hef náð að aðlagast betur. Síðasta tímabil var erfitt, að skipta um deild er ekki auðvelt."

Tottenham mætir Ludogorets á fimmtudaginn í Evrópudeildinni og leikur svo gegn West Brom í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner