Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mán 04. mars 2024 22:25
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Sheffield United og Arsenal: Margir áttu stórleik - Einn fékk tvist
Mynd: Getty Images
Martin Ödegaard var maður leiksins í 6-0 stórsigri Arsenal á Sheffield United á Bramall Lane í kvöld. Sky Sports sér um að gefa leikmönnum einkunnir.

Ödegaard var í essinu sínu í kvöld eins og í flestum leikjum á þessari leiktíð. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og var gríðarlega öflugur í sóknarleiknum allt kvöldið.

Sky gefur honum 9 fyrir frammistöðuna. Ben White, Jakub Kiwior, Declan Rice, Bukayo Saka, Kai Havertz og Gabriel Martinelli fá allir 8.

Oliver Norwood var slakasti maður vallarins og spilaði hann aðeins fyrstu fimmtán mínúturnar áður en honum var skipt af velli. Hann fær 2 í einkunn. Jayden Bogle og Auston Trust fá 3.

Sheffield United: Grbic (4); Bogle (3), Ahmedhodzic (4), Trusty (3), Robinson (4); Norwood (2), Souza (5), Hamer (5), Davies (5); McAtee (4), McBurnie (4)
Varamenn: Osborn (4), Baldock (6), Osula (6), Brooks (6), Arblaster (6)

Arsenal: Raya (7); White (8), Saliba (7), Gabriel (7), Kiwior (8); Jorginho (7), Rice (8), Odegaard (9); Saka (8), Havertz (8), Martinelli (8)
Varamenn: Vieira (7), Partey (6), Cedric (6), Jesus (6), Trossard (6)
Athugasemdir
banner
banner