Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 04. mars 2024 20:21
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Arsenal skoraði þrjú á tíu mínútum
Mynd: Getty Images
Arsenal er á flugi þessa stundina en liðið er komið í 3-0 gegn Sheffield United á Bramall Lane.

Martin Ödegaard skoraði fyrsta markið á 5. mínútu eftir gott samspil gestanna. Declan Rice fékk boltann vinstra megin í teignum, kom honum fyrir á Ödegaard sem átti ekki í vandræðum með að skora.

Sjáðu markið hjá Ödegaard

Átta mínútum síðar kom annað markið. Bukayo Saka óð upp hægri vænginn, kom honum fyrir markið og varð Jayden Bogle fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Sjáðu annað markið

Gabriel Martinelli skoraði siðan þriðja markið eftir hraða sókn en boltinn virtist hafa viðkomu af varnarmanni Sheffield United áður en hann fór í netið.

Sjáðu mark Martinelli

Athugasemdir
banner
banner
banner