Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. júlí 2021 16:07
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Njarðvík skoraði níu gegn Leikni F. - Tvær þrennur
Kenneth Hogg skoraði þrennu fyrir Njarðvík í risasigri
Kenneth Hogg skoraði þrennu fyrir Njarðvík í risasigri
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Njarðvík 9 - 1 Leiknir F.
1-0 Kenneth Hogg ('4 )
2-0 Einar Orri Einarsson ('6 )
3-0 Kenneth Hogg ('8 )
4-0 Bergþór Ingi Smárason ('23 )
5-0 Magnús Þórðarson ('40 )
6-0 Magnús Þórðarson ('46 )
6-1 Markaskorara vantar ('52 )
7-1 Magnús Þórðarson ('66 )
8-1 Tómas Óskarsson ('73 )
9-1 Kenneth Hogg ('90 )

Njarðvík niðurlægði Leikni F. í 2. deild karla í dag en heimamenn skoruðu níu mörk í leiknum. Kenneth Hogg og Magnús Þórðarson skoruðu báðir þrennu.

Njarðvíkingar leiddu með fimm mörkum þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Kenneth Hogg gerði fyrsta markið eftir fjórar mínútur og fjórum mínum síðar var Einar Orri Einarsson og Hogg báðir búnir að skora og staðan 3-0.

Bergþór Ingi Smárason og Magnús Þórðarson bættu við tveimur mörkum áður en hálfleikurinn var úti. Í þeim síðari hélt veislan áfram en Magnús gerði annað mark sitt í leiknum.

Gestirnir náðu inn einu marki á 52. mínútu en Njarðvíkingar gáfu aftur í eftir það og bættu við þremur mörkum til viðbótar. Lokatölur 9-1 fyrir Njarðvík sem er á toppnum með 20 stig og hefur ekki enn tapað leik. Leiknir F. er í 10. sæti með 9 stig.
Athugasemdir
banner
banner