Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 04. september 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pjanic sagði að Koeman hafi sýnt sér vanvirðingu
Mynd: Besiktas
Miralem Pjanic leikmaður Barcelona gekk til liðs við Besiktas á láni á dögunum.

Hann var í viðtali við Marca þar sem hann vandaði Ronald Koeman, þjálfara Barcelona ekki kveðjurnar.

„Hann sýndi mér vanvirðingu. Hann talaði aldrei við mig. Ég er leikmaður sem get tekið hverju sem er en ég vil að það sé sagt beint við mig, ekki eins og ég sé 15 ára."

Það eru mikil vandræði í gangi hjá Barcelona en ásamt Pjanic þá yfirgáfu menn á borð við Lionel Messi og Antoine Griezmann félagið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner