Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. október 2020 16:29
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Keflavík lagði Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 3 - 1 Grótta
1-0 Paula Isabelle Germino Watnick ('2)
2-0 Natasha Moraa Anasi ('15)
2-1 Bjargey Sigurborg Ólafsson ('27)
3-1 Kristrún Ýr Holm ('64)

Keflavík tók á móti Gróttu í næstsíðustu umferð tímabilsins í Lengjudeild kvenna og var komið í tveggja marka forystu á fyrsta korterinu.

Paula Watnick og fyrirliðinn Natasha Moraa Anasi sáu um markaskorunina áður en Bjargey Sigurborg Ólafsson minnkaði muninn fyrir Gróttu.

Keflavík var með fín tök á leiknum og tvöfaldaði Kristrún Ýr Hólm forystuna á ný á 64. mínútu.

Seltirningar ógnuðu ekki sigri Keflavíkur sem mun leika í Pepsi Max-deildinni á næstu leiktíð.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner