Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 05. mars 2021 12:53
Magnús Már Einarsson
De Gea orðinn faðir - Snýr fljótlega aftur
David De Gea.
David De Gea.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, reiknar með að David De Gea verði fljótlega mættur aftur til Englands.

De Gea spilaði ekki gegn Crystal Palace í vikunni þar sem hann fór til Spánar í vikunni til að vera viðstaddur þegar kærasta hans fæddi þeirra fyrsta barn.

Barnið kom í heiminn í gær og Solskjær reiknar með að De Gea komi fljótlega aftur til Englands. Hann getur byrjað að spila á ný eftir sóttkví.

„Ég veit ekki hvenær hann kemur aftur en það er ekki langt í það," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United.

Dean Henderson varði mark Manchester United gegn Crystal Palace og hann verður einnig á milli stanganna í grannaslagnum gegn Manchester City á sunnudag.

Enski boltinn - Mögnuð Meistaradeildarbarátta
Athugasemdir
banner
banner