Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 05. mars 2024 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefja vinnuna við að finna arftaka Guehi
Marc Guehi.
Marc Guehi.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur hafið vinnu við að finna arftaka Marc Guehi þar sem líklegt er að hann skipti yfir í stærra félag í sumar.

Telegraph segir frá því að Palace sé að setja saman lista yfir miðverði sem gætu fyllt í skarð Guehi.

Guehi hefur þróast vel frá því hann gekk í raðir Crystal Palace frá Chelsea fyrir síðasta tímabil.

Hann er bara 23 ára gamall og er búinn að vinna sér inn sæti í enska landsliðinu. Það er talið að hann muni kosta um 60 milljónir punda í sumar en hann yrði þá dýrasti leikmaður sem Palace hefur nokkurn tímann selt.

Guehi hefur mest verið orðaður við Liverpool og Manchester United að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner