Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 05. mars 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Martinelli studdur af velli og Saka veikur - „Þurfum að sjá hver staðan er á því“
Mynd: Getty Images
Stórsigur Arsenal á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í gær var svo gott sem fullkominn en það komu þó upp meiðsli sem Mikel Arteta, stjóri félagsins, vonar að séu ekki of alvarleg.

Bukayo Saka var að eiga stórgóðan leik áður en honum var skipt af velli í hálfleik.

Hann átti stóran þátt í öðru markinu er Jayden Bogle skoraði sjálfsmark og þá lagði hann upp fimmta markið fyrir Declan Rice en það kom mörgum í opna skjöldu þegar hann snéri ekki aftur á völlinn í síðari hálfleik.

„Bukayo var að glíma við smávægileg veikindi. Við erum líka með Fabio sem þarf að fá mínútur,“ sagði Arteta, sem hafði ekki of miklar áhyggjur af Saka.

Martinelli, sem skoraði eitt og lagði upp eitt, fór af velli á 64. mínútu. Læknateymi Arsenal þurfti að styðja við hann er hann gekk af velli.

„Varðandi Gabi Martinelli þá kom upp smá vandamál. Hann fékk skurð í fótinn og við þurfum að sjá hver staðan er á því,“ sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner