Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. mars 2024 15:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Njósnarar Juventus fylgdust með Alberti
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítalska stórliðið Juventus er að fylgjast afar vel með Alberti Guðmundssyni, leikmanni Genoa.

Fram kemur hjá Calciomercato í dag að njósnarar frá Juventus hafi gert sér ferð á leik Inter og Genoa í gærkvöldi til að fylgjast sérstaklega með Alberti.

Morten Frendrup, liðsfélagi Albert, er leikmaður sem Juventus er einnig að skoða.

Talið er að Genoa sé tilbúið að selja Albert fyrir 30 milljónir evra í sumar en Juventus er langt frá því að vera eina liðið sem hefur áhuga á Alberti. Hann hefur einnig verið orðaður við Inter, Fiorentina, Tottenham og West Ham.

Albert hefur verið einn besti leikmaður ítölsku úrvalsdeildarinnar á yfirstandandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner