Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. júlí 2021 10:50
Elvar Geir Magnússon
Guendouzi kvaddi Arsenal og eyddi svo færslunni
Matteo Guendouzi.
Matteo Guendouzi.
Mynd: Getty Images
Matteo Guendouzi hefur staðfest að hann sé á förum frá Arsenal. Á Instagram og Twitter gaf hann út yfirlýsingu en eyddi síðan skilaboðunum.

„Takk Arsenal. Takk fyrir allt saman," skrifaði franski miðjumaðurinn sem var á lánssamningi hjá Hertha Berlín á síðasta tímabili.

Hann segist hafa lært mikið á tíma sínum hjá Arsenal og hann muni ekki gleyma einni mínútu þar sem hann klæddist treyju félagsins með stolti.

„Bless Arsenal, ég mun verða stuðningsmaður liðsins út lífsleiðina," skrifaði Guendouzi.

Hann er að ganga í raðir Marseille í Frakklandi eftir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá félaginu samkvæmt fréttum.
Athugasemdir
banner
banner
banner